CP félagið stendur fyrir jafningjanámskeiðum fyrir 10-15 ára börn með CP. Námskeiðin fara fram í nóvember 2022 og janúar 2023. Efni námskeiðsins er hugsað og útbúið af fólki með CP um það sem þau hefðu viljað vita og prófa fyrr á ævinni og mótað útfrá því fyrir ungt fólk með CP:
Markmið námskeiðsins:
- Bæta félagsleg tengsl og draga úr félagslegri einangrun barna og ungmenna með CP.
- Skapa jafningjagrundvöll fyrir ungmenni til þess að ræða sjálfan sig, fötlun sína og lífið almennt sín á milli.
- Auka vægi og styrkja rödd ungmenna innan fræðslustarfs CP félagsins.
- Búa til félagslegt tengslanet út í lífið fyrir ungmenni sem lifa við svipaðan raunveruleika í íslensku samfélagi.
Tveir hópar og dagsetningar verða í boði:
- 13-15 ára ungmenni, 5.-6. nóvember 2022
- 10-12 ára börn, 14.-15. janúar 2023
Námskeiðið verður frá kl. 15-18, báða dagana, í Sjónarhóli, Háaleitisbraut 13, Reykjavík. Veitingar verða í boði.
Námskeiðið er ætlað öllum börnum og ungmennum, 10-15 ára, sem eru með CP hreyfihömlun. 10 sæti eru í boði á hverju námskeiði.
Skráningarsíða fyrir námskeiðið.