Skip to main content
Uncategorized

Stjórn 2026-2027

By maí 7, 2026No Comments

Á dögunum var haldinn aðalfundur CP félagið þar sem fráfarandi stjórn fór yfir helstu verkefni síðastliðins starfsárs og þakkaði Dagmar Ýr Stefánsdóttir fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Við óskum henni alls hins besta í nýjum verkefnum.

Aðrir stjórnarmeðlimir gáfu kost á sér áfram. Steinunn Þorsteinsdóttir bauð sig aftur fram til formanns án mótframboðs og var því endurkjörin. Hjördís Hjörleifsdóttir og Vala Guðmundsdóttir voru einnig endurkjörnar í stjórn. Þá kemur Emilía Heiða Þorsteinsdóttir ný inn í stjórn og bjóðum við hana hjartanlega velkomna.

Á fundinum var jafnframt ákveðið að halda félagsgjöldum óbreyttum eða 3.000 kr. á fjölskyldu.

Á starfsárinu hefur félagið sinnt öflugu fræðslustarfi, tekið þátt í norrænu samstarfi, sótt um aðild að alþjóðlegum samtökum CP félaga og staðið fyrir fjölskylduviðburðum og jafningjahópum. Þá hafa Færnibúðirnar, sem haldnar eru í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, verið stór og mikilvægur þáttur í starfi félagsins.

Við hlökkum til nýs starfsárs og áframhaldandi uppbyggingar á öflugu samfélagi fyrir fólk með CP og aðstandendur þeirra.

Leave a Reply