Opið er fyrir umsóknir hjá Mannefli, styrktarsjóði CP félagsins.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja félagsmenn með CP og/eða aðstandendur þeirra. Sjóðnum skal varið til þess að styrkja félagsmenn með CP til samfélagsþátttöku, svo sem til náms, lista og íþróttaþátttöku, aðstandendur og fagaðila til að afla sér þekkingar í þágu einstaklinga með CP.
Umsóknarfrestur á haustönn er til 1. október næstkomandi.