Skip to main content
Uncategorized

Afmælishátíð ÖBÍ

By maí 7, 2026No Comments

Þann 5.maí sl. var haldinn afmælisviðburður á vegum ÖBÍ í Mannréttindahúsinu Sigtúni 42 til þess að fagna stórafmæli þeirra og fagna þeim samtakamætti og hagsmunabaráttu sem hefur náðst á sl. árum, baráttan er þó hvergi nærri hætt og samheldnin og gleðin á viðburðinum var áþreyfanleg.

Viðstaddir gestir fengu rós og blöðru merkta félaginu auk þess sem CP félagið gaf ÖBÍ blómvönd í tilefni dagsins auk þess að senda þeim smá afmæliskveðju og þakklæti. Í kortinu stóð:

CP félagið vill óska ykkur hjartanlega til hamingju í
tilefni af þessum tímamótum, 65 ára áfanganum.

Þúsund þakkir fyrir að standa straum af allri þeirri
hagsmunabaráttu sem hefur verið háð í gegnum tíðina.
Áfram höldum við í baráttunni fyrir jafnrétti í
sameiningu.

Samhliða því að óska ykkur til hamingju langar CP
félaginu einnig að sýna þakklæti fyrir það tækifæri að
vera hluti af Mannréttindahúsinu og þeirri samstöðu
sem þar hefur skapast.

Kærleikskveðja
Stjórn CP félagsins

Leave a Reply