Reykjavíkurmaraþonið er haldið ár hvert og í ár fer það fram laugardaginn 22.ágúst og áheit til félagsins eru eyrnamerkt styrktarsjóði félagsins, Mannefli, en fara ekki í daglegan rekstur.
Hægt er að styrkja HÉR
Mannefli er styrktarsjóður félagsmanna sem þau hafa aðgengi að. Styrktarsjóðnum er gert að styrkja félagsmenn með CP hreyfihömlun til samfélagsþátttöku m.a. nám, listir eða íþróttaiðkunar. Aðstandendur og fagfólk getur sótt um til þess að afla sér þekkingar í þágu CP einstaklinga.
Þeir sem hlaupa fyrir hönd félagsins fá í ár svarta boli merkta CP félaginu auk þess að fá blöðrur sem einnig eru merktar félaginu. Ef einhver í hvatningar liði félagsins vill blöðrur eða boli má sjá nánari upplýsingar á facebook viðburði inn á Cerebral Palsy Ísland facebook síðunni eða í tölvupósti á cp@cp.is
Einnig langar okkur að hvetja ykkur öll til þess að huga að því að hlaupa í þágu félagsins eða hvetja aðra til þess. Einnig er hægt að styrkja þá sem nú þegar hafa skráð sig til leiks. Þriðja og ekki síður mikilvæga leiðin til þess að styðja við félagið er að deila og tala um félagið, þannig vita fleiri af okkur.
Vonumst til þess að þið verðið sýnileg með okkur, hvort sem þið hlaupið, deilið eða hvetjið!
