Félag einstaklinga með CP og aðstandendur
Verkefnabók fyrir grunnskólabörn
Bókin er hugsuð sem verkfæri fyrir börn á grunnskólaaldri óháð færni og fötlun til að efla sjálfsmynd sína og vináttutengsl.
Hugmyndin af bókinni kviknaði á Jafningjanámskeiði CP félagsins og eftir að hafa kynnt okkur málið var ljóst að þörf var á slíkri bók sem gerir ráð fyrir verkefnum fyrir grunnskólabörn óháð færni þeirra eða skerðingu. Bókin er að mestu leyti unnin með börnum með skerðingar af ýmsum toga.
Markmið bókarinnar
- Vinna bókina með börnum og unglingum á grunnskólaaldri, fyrir börn á grunnskólaldri.
- Bókin höfði til barna óháð færni eða fötlun.
- Horfa á styrkleika hvers og eins.
- Efla sjálfsmynd og sjálfstæði ungmenna óháð færni eða fötlun.
- Bæta tengsl ungmenna við sig sjálf og aðra óháð færni eða fötlun.
- Leiðir og aðferðir til þess að takast á við tilfinningar sínar og hugsanir.
- Veita ungmennum innsýn í mikilvægi vináttu og verkfæri til þess að stofna og viðhalda tengslum við jafnaldra.
Verkefni bókarinnar skiptast í þrjá kafla:
Sjálfsmyndin:
- Unnið að því að efla sjálfsmynd grunnskólabarna.
- Vinna með styrkleika sína.
- Verkfæri til að skilja líkama sinn og líkamsímynd.
- Verkfæri til þess að átta sig á tilfinningum sínum.
- Veita börnum verkfæri til að kynnast sér betur.
- Veita börnum tækifæri til þess að móta hver þau vilja vera.
- Að vinna að eigin markmiðum.
- Veita börnum verkfæri til þess að vera sátt í eigin skinni og standa með sjálfum sér.
Vinátta:
- Unnið að því að útskýra hvað felst í vináttu.
- Hver er ég sem vinur?
- Hver er vinur minn?
- Að setja öðrum mörk?
- Að eignast vini.
- Að viðhalda vinskap.
Þar að auki er ýmsir fróðleiksmolar sem tengjast verkefnunum og umræðuefni þeirra.
Aukaefni:
- Umræðupunktar / Vangaveltur.
- Auka fróðleikur.
- Leikir.
- Hvatningarorð.
- Hugmyndir sem styðja við verkefnabókina.
Styrktaraðilar Verkefnabókar fyrir grunnskólabörn
Styrktaraðilar koma að gerð bókarinnar með einum eða öðrum hætti eða styðja við verkefnið í formi styrkja:
- ÖBÍ
- Reykjadalur sumarbúðir
- Lífsstefna
- Fjölbreyttar kennsluaðferðir fyrir fjöruga krakka
- Æfingastöðin
Nýlegar athugasemdir