Skip to main content
Fréttir

Vegna aðalfundar CP félagsins – Skráning og fleira

By apríl 14, 2022No Comments

Hér koma nokkur praktísk atriði í tengslum við aðalfund CP félagsins, sem haldinn verður fimmtudaginn 28. apríl næstkomandi kl. 20.

  • Fundurinn verður haldinn á staðnum, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð, en einnig á netinu. Þetta fyrirkomulag var haft á fundinum á síðasta ári og mæltist það mjög vel fyrir.
  • Notast verður við rafræna kosningu, svo netverjar geti tekið fullan þátt í allri dagskrá. Því biðjum við þá félagsmenn sem ætla að mæta, hvort sem er á staðinn eða gegnum netið, að skrá þátttöku sína.
  • Tillögum að lagabreytingum skal skilað inn í síðasta lagi 7 dögum fyrir aðalfund. Óskast það gert gegnum netfangið cp@cp.is. Einnig má senda þær beint á stjórnarmann. Tillögur sem berast verða svo birtar á vef félagsins 5 dögum fyrir fund.
  • Kosið verður um fjögur sæti í stjórn að þessu sinni, formann og þrjá aðra stjórnarnmenn. Áhugasamir eru hvattir til þátttöku.

Dagskrá fundarins verður annars sem hér segir:

  1. Skýrsla stjórnar CP félagsins fyrir liðið starfsár
  2. Afgreiðsla reikninga síðasta reikningsárs
  3. Lagabreytingar
  4. Lögð drög að starfi félagsins
  5. Ákvörðun árgjalds félagsmanna fyrir næsta ár
  6. Kosning stjórnar og skoðunarmanns reikninga
  7. Mannefli, styrktarsjóður
  8. Önnur mál

Hafir þú spurningar um aðfalfundinn, hvetjum við þig til að hafa samband, gegnum cp@cp.is.

Leave a Reply