Félag einstaklinga með CP og aðstandendur
Úthlutunarreglur Manneflis, minningar- og styrktarsjóðs CP félagsins
- Tilgangur sjóðsins er að styrkja félagsmenn með CP og/eða aðstandendur þeirra:
- Til samfélagsþátttöku, svo sem til náms, lista og íþróttaþátttöku.
- Til að afla sér þekkingar í þágu einstaklinga með CP.
- Einnig er heimilt að styrkja verkefni og viðburði á vegum CP félagsins.
- Stjórn styrktarsjóðsins skal hafa reglur sjóðsins til hliðsjónar við úthlutun.
- Styrkjum er úthlutað tvisvar á ári. Umsókn um styrk skal gerð á umsóknareyðublaði á vef félagsins, ásamt fylgigögnum ef einhver eru. Frestur til að sækja um styrk er 1. apríl og 1. október ár hvert.
- Sjóðsstjórn ákveður árlega heildarupphæð styrkja og skal leitast við að sambærileg upphæð komi til úthlutunar í hvorri úthlutun.
- Styrkir eru greiddir út samkvæmt framvísuðum reikningum sem hafa verið samþykktir af stjórn sjóðsins. Reikningar skulu ekki vera eldri en 12 mánaða.
- Við mat á umsóknum skal m.a. líta til mikilvægis verkefna fyrir CP, hvort styrkbeiðandi á rétt á styrkjum annars staðar frá og hvort styrkbeiðandi hefur áður fengið styrk úr sjóðnum.
- Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum er að viðkomandi sé skuldlaus félagsmaður í CP félaginu.
- Sæki stjórnarmaður í sjóðnum, fjölskylda hans eða tengdur aðili, um styrk frá sjóðnum, skal stjórnarmaðurinn víkja af fundi þegar fjallað er um umsókn hans og varamaður tekinn inn í hans stað.
Nýlegar athugasemdir