Fréttir
5.3.2010
Spjallfundur
Mánudaginn 8. mars 2010 verður opinn spjallfundur.
Fundarefnið verður allt sem vildir vita um CP og það sem liggur á þínu hjarta.
Fundurinn hefst klukkan 20:00 og verður í Sjónarhólshúsinu.
Nú gefst gott tækifæri til að spjalla og fræðast hvert af öðru.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að koma og eiga notalegt spjall yfir kaffibolla.
5.3.2010
Ráðstefna um fötlunarrannsóknir
Mannréttindi og sjálfstætt líf - Ráðstefna um fötlunarrannsóknir
Föstudag 12. mars, 2010, kl. 9.00 - 17.00
Grand Hótel Reykjavík
Félag um fötlunarrannsóknir og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við
Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands bjóða til ráðstefnu um fötlunarrannsóknir.
Ráðstefnan er ætluð öllu áhugafólki um efnið.
Föstudag 12. mars, 2010, kl. 9.00 - 17.00
Grand Hótel Reykjavík
Félag um fötlunarrannsóknir og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við
Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands bjóða til ráðstefnu um fötlunarrannsóknir.
Ráðstefnan er ætluð öllu áhugafólki um efnið.
Ráðstefnustjóri:
Ragnar Gunnar Þórhallsson formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
09:00 Skráning
09:15 Setning:
Rannveig Traustadóttir, formaður Félags um fötlunarrannsóknir
09.20 Ávarp:
Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra
09:30 Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks og bannið gegn mismunun
Oddný Mjöll Arnardóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík
10:20 Kaffihlé
10:45 Samningur SÞ, réttur til fjölskyldulífs og aðgengi að foreldrahlutverkinu
Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor við Háskóla Íslands, Helga Baldvins og Bjargardóttir
þroskaþjálfi og lögfræðingur og Aðalbjörg Gunnarsdóttir háskólanemi
11:15 Samningur SÞ og aðgengi fyrir alla
Snæfríður Þóra Egilson prófessor við Háskólann á Akureyri og Eyrún Björk Pétursdóttir iðjuþjálfi
11:45 Umræður
með fyrirlesurum morgunsins í pallborði
12:00 Hádegishlé
13:00 Stuðningur við heimili og daglegt líf
Dóra S. Bjarnason prófessor við Háskóla Íslands
13.30 Sjálfstætt líf - helstu hornsteinar
Vilborg Jóhannsdóttir lektor við Háskóla Íslands og Freyja Haraldsdóttir háskólanemi
14.15 Sögulegt tækifæri: Uppgjör við fortíð - hvert stefnir í framtíð?
Rannveig Traustadóttir prófessor við Háskóla Íslands
14:45 Umræður
með fyrirlesurum eftirmiðdagsins í pallborði
15.15 Kaffihlé
15.30 Aðalfundur Félags um fötlunarrannsóknir
Dagskrá verður dreift í upphafi aðalfundar.
Fundarstjóri:
Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands
17:00 Ráðstefnulok
Ráðstefnugjald:
Almennt ráðstefnugjald er kr. 5000. Nemendur og lífeyrisþegar greiða kr. 2000.
Innifalið í ráðstefnugjaldi
: Ráðstefnugögn, morgunkaffi og síðdegishressing.
Skráning er á vef Félags um fötlunarrannsóknir
http://vefsetur.hi.is/fotlunarrannsoknir/skraning_radstefnuna_"mannrettindi_og_sjalfstaett_lif"_hal
din_12_mars_2010
Síðasti skráningardagur er 9. mars.
Nánari upplýsingar:
Kristín Björnsdóttir (krb4@hi.is) og Hanna Björg Sigurjónsdóttir (hbs@hi.is
Táknmálstúlkun:
Þeir sem þurfa táknmálstúlkun eru beðnir að láta vita með viku fyrirvara.
5.3.2010
www.sjukra.is
Nýlega opnaði heilbrigðisráðherra formlega nýjan vef Sjúkratrygginga Íslands, www.sjukra.is. Ný vefsíða Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is var tekin í notkun þriðjudaginn 16. febrúar sl. Vefurinn mun taka við hlutverki tr.is sem upplýsingaveita um réttindi til sjúkratrygginga. Markmiðið er einnig að vefurinn þjóni betur heilbrigðisstarfsfólki og stofnunum heldur en áður hefur verið gert.
Við hvetjum alla til að skoða þennan nýja vel.
5.3.2010
Skíðakennska
Skíðamennska fyrir einstaklinga með sérþarfir
· Fyrir hvaða aldur? Allir velkomnir til okkar.
· Fyrir hverja? Krakka og fullorðna sem vilja læra á skíði en þurfa aðstoð.
· Hvenær get ég komið? Annan hvern föstudag í allan vetur eða 22. jan, 5., 12 og 19. feb, 5. og 19. mars, og 2., 16 og 30. apríl 2010. Eins er alltaf hægt að hafa samband og finna annan tímaJ.
· Hvað kostar þetta? Klukkutíminn kostar 2000kr og 2 tímar kosta 3500kr
· Hvernig panta ég? Nauðsynlegt er að panta fyrirfram og þá er best að hafa samband við Elsu í síma 864-2062 eða senda mér tölvupóst á elsa@saltvik.is
10.2.2010
Frétt
Fyrirlestur um útivist fatlaðra
Þann 15. febrúar næstkomandi mun Þroskaþjálfafélag Íslands bjóða upp á fyrirlestur um útivist og útivistarmöguleika fatlaðra. Fyrirlesari verður Beth Fox, en hún efur unnið að útivistarmálum fatlaðra í hátt á þriðja áratug.
Beth Fox er sjúkraþjálfari og sérkennari að mennt og er framkvæmdarstjóri National Sports Center for the Disabled (NSCD) í Colorado í Bandaríkjunum. NSCD býður öllum sem hafa sérþarfir upp á aðstoð við útivistariðkun, hvort sem það eru blindir í klettaklifri, fjölfatlaðir á skíðum eða fólk með félagsfælni í hópútilegu.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 20.00 þann 15. febrúar að Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Allir velkomnir, frítt inn.
