Fréttir

Fréttir

8.9.2010

Tónleikar

Skrifað 8.9.2010 kl. 9:08 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

30.8.2010

skýrsla ríkisendurskoðunnar

Bæta þarf stjórnun og eftirlit með þjónustu við fatlaða

Áformað er að flytja málaflokkinn alfarið frá ríki til sveitarfélaga á næsta ári

Samþykkja þarf heildarstefnu um þjónustu við fatlaða og tryggja samræmi hennar milli stofnana og landshluta. Þá þarf að efla allt eftirlit með starfseminni.

Samkvæmt fjárlögum munu framlög til þjónustu við fatlaða nema samtals 11,2 ma.kr. á þessu ári. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er bent á ýmsa veikleika í skipulagi og stjórnun málaflokksins. Þannig liggi t.a.m. ekki fyrir formlega samþykkt heildarstefna um hann og fjárveitingar taki ekki mið af reglulegu mati á þörf fyrir þjónustu. Einnig sé eftirliti með starfseminni ábótavant og því ekki tryggt að jafnræði ríki meðal þjónustuþega.

Svæðisskrifstofur sjá um að veita þjónustu við fatlaða í umboði félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Að auki hefur ráðuneytið samið við fimm sveitarfélög eða byggðasamlög um að veita þjónustuna gegn greiðslum úr ríkissjóði. Í skýrslunni kemur fram að ekki liggi fyrir með hvaða hætti þessir samningar hafi verið uppfylltir.

Áformað er að flytja málaflokkinn alfarið frá ríki til sveitarfélaga í byrjun næsta árs. Ráðuneytið mun þó eftir sem áður bera ábyrgð á yfirstjórn hans og hafa eftirlit með þjónustunni. Þrátt fyrir þessi áform liggur ekki fyrir mat á því hvaða ávinningi flutningurinn mun hugsanlega skila og telur Ríkisendurskoðun það ámælisvert.

Í skýrslunni er bent á ýmsar leiðir til að bæta stjórnun málaflokksins. Meðal annars þurfi að samþykkja formlega heildarstefnu þar sem fram komi skýr forgangsröðun, aðgerðaáætlun og mælikvarðar á árangur. Einnig þurfi að tryggja samræmi þjónustunnar milli stofnana og landshluta og að fjárveitingar til hennar taki mið af reglulegu mati á þjónustuþörf. Þá sé brýnt að bæta allt eftirlit með þjónustunni. Loks þurfi stjórnvöld að tryggja að unnt verði að meta mögulegan ávinning af flutningi málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga.

Við hvetjum alla til að lesa skýrsluna en hér er linkur beint á hana.
http://www.rikisendurskodun.is/fileadmin/media/skyrslur/thjonusta_vid_fatlada.pdf

Skrifað 30.8.2010 kl. 12:41 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.8.2010

Ótitlað

Kærar þakkir til ykkar allra sem hjálpuðu okkur að ná settu marki í áheitahlaupinu á laugardaginn.
Við náðum takmarkinu og rúmlega það og án ykkar hefðum við aldrei getað það.

Skrifað 23.8.2010 kl. 13:06 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.8.2010

Reykjavíkur maraþon

Mikið er gaman að fylgjast með þessari síðu í dag http://hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/nanar/4886/felag-cp-a-islandi. Við settum okkur markmið að safna 500.000.- kr. og núna erum við búin að tvöfalda það og stefnum á að ná 1.000.000.- kr. emoticon  Mikið væri það gaman ef að það markmið yrði sprengt.
Umfjölluninn um félagið okkar hefur aldrei verið eins mikil og allir ótrúlega forvitnir um það hvað CP er. Ennþá er tími til að heita á okkar fólk og svo vonumst við auðvita til að sem flestir sjá sér fært að mæta á morgun og hvetja okkar hlaupara því að það eiga þau svo sannarlega skilið.
Sjáumst á morgun með flottustu buffin í bænum.
Áfram CP hlauparara.
kv.
Klara Geirs

Skrifað 20.8.2010 kl. 15:57 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.8.2010

Maraþon

CP félagið vill vekja athygli á því að sá sem er að safna mestum áheitum er að hlaupa fyrir okkur og hvetur alla til að leggja okkur lið og senda inn áheit. Mikið væri gaman ef að Oddur Kristjánson yrði hæðstur út hlaupið.
Við viljum líka senda öllum þakklæti sem eru að hlaup fyrir okkur og ekki síður þeim sem styrkja okkur.
Þeir sem eru ekki búnir að fá BUFF með CP merkinu eru beðnir að senda línu á cp@cp.is eða hringja í síma 691-8010.
http://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/nanar/4886/felag-cp-a-islandi þetta er linkur inn á okkar svæði hjá hlaupastyrkur.is og það er mjög auðvelt og skemmtilegt að senda inn áheit emoticon.
Áfram CP hlauparar þið eru öll frábær.
Bestu kveðjur
Klara Geirs.

Skrifað 19.8.2010 kl. 9:16 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.8.2010

Reykjavíkurmaraþon

Reykjavíkurmaraþon verður 21.08.2010 og í tengslum við hlaupið gefst velunnurum Félags CP á Íslandi tækifæri á að "hlaupa til góðs" þ.e. bankar styrkja góðgerðarfélag að vali viðskiptavinar um ákveðna fjárhæð. Einnig gefst fyrirtækjum og einstaklingum sem ekki geta hlaupið, en vilja láta gott af sér leiða, tækifæri á að heita ákveðinni upphæð á hlaupara. 

Áheitasöfnun í tengslum við hlaupara er í fullum gangi og mikilvægt að félag CP á Íslandi veki athygli sinna félagsmanna á að hægt er að heita á hlaupara á hlaupastykur.is og velja Félag CP undir flippanum góðgerðarfélög og þá sjást þeir sem ætla að hlaupa fyrir okkur.

Þar er hægt að heita á keppendur bæði með SMSi og með kredditkorti.

Félagið hefur sett sér það markmið að safna 500.000.- krónum í hlaupinu í ár og til að það náist þurfa allir að leggjast á eitt.

Fjöldi manns hefur styrkt CP félagið með því að taka þátt í hlaupinu eða heita á þá sem hlaupa og kann félagið þeim miklar þakkir fyrir. Eru félagar, sem og aðrir, hvattir að taka þátt.

Hér er síðan með hlaupurunum sem hlaupa fyrir CP
Með kveðju
Klara Geirsdóttir formaður félags CP á Íslandi

Skrifað 5.8.2010 kl. 18:23 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.7.2010

Reykjavíkurmaraþon

Reykjavíkurmaraþon
Hlaupastyrkur.is


 Hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að hlaupa til góðs og hlaupa fyrir CP félagið, þeir sem hlaupa fyrir CP félagið geta fengið CP BUFF til eignar, eina sem þarf að gera er að skrá sig í hlaupið og senda okkur línu á cp@cp.is.
 
Opnaður hefur verið nýr áheitavefur fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010, hlaupastyrkur.is. Um er að ræða mun notendavænna umhverfi heldur en unnið hefur verið í undanfarin ár.
Á vefnum geta hlauparar sett inn myndir af sér og sagt frá því hversvegna þeir hafa valið að hlaupa fyrir tiltekið góðgerðafélag. Áheit er hægt að greiða með kreditkorti eins og verið hefur undanfarin ár en auk þess er hægt að heita á hlaupara með því að senda sms skilaboð.

Til að hefja söfnun þurfa hlauparar að fara inná vefinn hlaupastyrkur.is og velja "nýskráning". Þá fá þeir tilboð um að setja inn mynd af sér og segja hversvegna þeir hlaupa fyrir tiltekið málefni. Hægt er að safna áheitum í tveimur flokkum; sem boðhlaupslið eða sem einstaklingur sem tekur þátt í maraþoni, hálfmaraþoni, 10 km hlaupi eða 3 km skemmtiskokki.
Það er von Reykjavíkurmaraþons að nýr vefur setji aukin kraft í áheitamálin og skili enn meiri tekjum í öll þau þörfu málefni sem hægt er að hlaupa fyrir.

Skrifað 20.7.2010 kl. 13:43 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.7.2010

Pokasjóður

Í hádeginu í dag var úthlutað úr pokasjóði og vorum við í CP félaginu svo lánsöm að hljóta styrk vegna sumarhátíðarinnar. Takk fyrir okkur pokasjóður.

Skrifað 15.7.2010 kl. 14:00 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.7.2010

sumarlokun og Reykjavíkur maraþon

Skrifstofa CP félagsins verður lokuð til 15. ágúst. 
Það er samt alltaf hægt að ná í okkur í síma félagsins 691 - 8010.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 21. ágúst næstkomandi. Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 er hægt að hlaupa til góðs og geta hlauparar tengt sig ákveðnu líknarfélagi og óskað eftir að heitið sé á þá. Hægt er að tengja sig góðgerðarfélögunum um leið og skráning fer fram eða á "mínum síðum" á síðu hlaupsins  http://www.reykjavikurmarathon.is/reykjavikurmaraton . Ekki er mögulegt að skipta um góðgerðarfélag eftir að söfnun er hafin.  Viljum við hvetja þá félagsmenn og velunnara sem ætla að hlaupa í ár að styðja CP félagið.   

Skrifað 13.7.2010 kl. 15:14 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.7.2010

Myndir

Setti inn nokkrar myndir af sumarhátíðinni.

Skrifað 12.7.2010 kl. 11:29 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.7.2010

sumarhátíð

CP félagið þakkar öllum sem komu á sumarhátíðina um síðustu helgi kærlega fyrir komuna og vonar að sem flestir mæti aftur að ári.Leikhópurinn Lotta, Lalli töframaður og Jónsi fá líka kærar þakkir því án þeirra hefði hátíðin ekki tekist svona vel. Svo setjum við inn myndir á næstu dögum þeir sem luma á skemmtilegum myndum og myndu vilja leyfa okkur að hafa þær hér á heimasíðunni mega gjarnan senda þær til okkar í cp@cp.is.

Skrifað 6.7.2010 kl. 13:02 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.6.2010

Sumarhátíð

Minnum á að skráningu fyrir sumarhátíðna lýkur að kvöldi þriðjudags 29. júní.

Hægt er að skrá sig í síma félagsins 691-8010 eða með tölvupósti í cp@cp.is  í skráningunni þarf að taka fram nafn þess sem pantar fjölda fullorðina, fjölda og aldur barna og hvort óskað sé eftir gistingu í skólanum eða á tjaldsvæðinu.
 
Dagskrá sumarhátíðar.

Föstudagur 2. júlí

Grillið heitt, hver kemur með sinn mat og drykk.

          Milli kl. 21 og 21.30 hefst varðeldur og fjöldasöngur.

          Laugardagur 3. júlí

11:30 Keyrt upp í Haukadalsskóg og labbað um skóginn þar sem     meðal annars eru hjólastólastígar

       Boðið upp á ökuferð með "Kubbnum"

          Hittum Rauðhettu og úlfinn í skóginum.

Grillaðar pylsur verða í boði milli kl. 13 - 14 í skýlinu Haukadalsskógi   

          Sund í Reykholtslaug

          Hoppukastalar og leiktæki á túninu fyrir framan Aratungu.

          Kl. 18 kvöldverður í Aratungu

Eftir matinn verða skemmtiatriði,

Lalli töframaður og Jónsi kemur og syngur nokkur lög.

Semsagt frábær skemmtun - og dans á eftir.

         

          Sunnudagur 4. júlí

          Engin formleg dagskrá.

Boðið er uppá stæði fyrir tjaldið eða gistingu í svefnpokaplássi.

Þeir sem ekki vilja gista geta keyrt á staðinn að morgni laugardags

og til baka um kvöldið.

Sama gamla verðið, kr 2.500.- fyrir fullorðna, 1.500.- fyrir 6-12 ára

og frítt fyrir yngstu börnin. Tökum visa og euro.

Innifalið í verðinu er hreinlega allt sem hér að ofan er talið þ.e. tjaldaðstaða eða gisting í svefnpokaplássi í Reykholtsskóla, grillaðstaða

á föstudag, sund, glæsilegur kvöldverður, skemmtun og dans

Skrifað 28.6.2010 kl. 21:46 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.6.2010

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 21. ágúst næstkomandi. Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 er hægt að hlaupa til góðs og geta hlauparar tengt sig ákveðnu líknarfélagi og óskað eftir að heitið sé á þá. Hægt er að tengja sig góðgerðarfélögunum um leið og skráning fer fram eða á "mínum síðum" á síðu hlaupsins  http://www.reykjavikurmarathon.is/reykjavikurmaraton . Ekki er mögulegt að skipta um góðgerðarfélag eftir að söfnun er hafin.  Viljum við hvetja þá félagsmenn og velunnara sem ætla að hlaupa í ár að styðja CP félagið.  Skráningargjöld í hlaupið hækka 1. júlí og er því gott að vera tímanlega með skráninguna.  
       Með kveðju,  
Klara Geirsdóttir formaður félags CP á Íslandi

Skrifað 23.6.2010 kl. 12:53 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.6.2010

Ótitlað

Golfæfingar í Hraunkoti á þriðjudögum í sumar
Í sumar mun Golfsamband fatlaðra á Íslandi bjóða upp á golfæingar í Hraunkoti hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Æfingarnar verða á þriðjudögum á milli kl. 17:00-19:00 fyrir alla fötlunarhópa.
Jóhann Hjaltason verður kennari við æfingarnar og stefnt er á að skipta tímunum upp eftir getu þannig að æfingin verði um klukkustund á hvern iðkanda í viku. Æfingarnar eru þegar hafnar og næsta æfing verður í Hraunkoti þriðjudaginn 29. júní næstkomandi.

Skrifað 23.6.2010 kl. 12:41 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.6.2010

Dagskrá sumarhátíðar

Sumarhátíð CP félagsins

Þá er komið að okkar árlegu sumarhátíð, sem haldin verður í Reykholti

Biskupstungum helgina 2. júlí - 4. júlí nk.

Dagskráin verður sem hér segir:

          Föstudagur 2. júlí

Grillið heitt, hver kemur með sinn mat og drykk.

          Milli kl. 21 og 21.30 hefst varðeldur og fjöldasöngur.

          Laugardagur 3. júlí

11:30 Keyrt upp í Haukadalsskóg og labbað um skóginn þar sem     meðal annars eru hjólastólastígar

       Boðið upp á ökuferð með "Kubbnum"

          Hittum Rauðhettu og úlfinn í skóginum.

Grillaðar pylsur verða í boði milli kl. 13 - 14 í skýlinu Haukadalsskógi   

          Sund í Reykholtslaug

          Hoppukastalar og leiktæki á túninu fyrir framan Aratungu.

          Kl. 18 kvöldverður í Aratungu

Eftir matinn verða skemmtiatriði,

Lalli töframaður og Jónsi kemur og syngur nokkur lög.

Semsagt frábær skemmtun - og dans á eftir.

         

          Sunnudagur 4. júlí

          Engin formleg dagskrá.

Boðið er uppá stæði fyrir tjaldið eða gistingu í svefnpokaplássi.

Þeir sem ekki vilja gista geta keyrt á staðinn að morgni laugardags

og til baka um kvöldið.

Sama gamla verðið, kr 2.500.- fyrir fullorðna, 1.500.- fyrir 6-12 ára

og frítt fyrir yngstu börnin. Tökum visa og euro.

Innifalið í verðinu er hreinlega allt sem hér að ofan er talið þ.e. tjaldaðstaða eða gisting í svefnpokaplássi í Reykholtsskóla, grillaðstaða

á föstudag, sund, glæsilegur kvöldverður, skemmtun og dans.

Skráning er hafinn og fer fram í gegnum tölvupóst, í póstinum þarf að koma fram  nafn þess sem pantar og hversu margir koma, aldur barna og hvar á að gista. Skráning á að vera búin fyrir 29 júní . Einnig er hægt að skrá sig í síma félagsins 691-8010.

Sjáumst kát og hress, í góða skapinu, í góða veðrinu!!!

Skrifað 21.6.2010 kl. 15:37 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.6.2010

17. júní


Sendir öllum Íslendingum nær og fjær hamingjuóskir á þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Skrifað 17.6.2010 kl. 11:27 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.6.2010

Ótitlað


Skrifað 12.6.2010 kl. 10:52 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.6.2010

Sumarhátíð

Sumarhátíð CP félagsins

 

Þá er komið að okkar árlegu sumarhátíð, sem haldin verður í Reykholti

Biskupstungum helgina 2. júlí - 4. júlí nk.

Boðið er uppá stæði fyrir tjaldið eða gistingu í svefnpokaplássi.

Þeir sem ekki vilja gista geta keyrt á staðinn að morgni laugardags

og til baka um kvöldið.

Sumarhátið cp félagsins er góður vettvangur fyrir bæði börn og foreldra í félaginu.

Stemningin er að venju mjög góð, á laugardeginum skella flestir sér í sundlaug sem er á svæðinu og um kvöldið er kvöldverður í boði grill og gaman.

Í framhaldi af grillinu eru skemmtiatriði og diskó fyrir börn og fullorðna.

Hoppukastalar og leiktæki eru á svæðinu .

Skráning er hafinn og fer fram í gegnum tölvupóst (cp@cp.is), í póstinum þarf að koma fram  nafn þess sem pantar og hversu margir koma, aldur barna og hvar á að gista. Skráning að vera búin fyrir 29 júní . Einnig er hægt að skrá sig í síma félagsins 691-8010.

Með von um að sjá sem flesta.

Fyrir hönd Félags CP á Íslandi

Klara Geirsdóttir 864-5340

Skrifað 11.6.2010 kl. 8:33 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.6.2010

NPA

Alþingi sammála um að koma skuli á NPA

félags- og tryggingamálaráðherra er þar með falið að koma á fót notendastýrðri persónulegri aðstoð, með setningu laga á haustþingi 2010. 

Fyrr í dag var samþykkt samhljóða á Alþingi ályktun um að fela félags- og tryggingamálaráðherra að koma á fót notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) við fatlað fólk á Íslandi með það að markmiði að fatlað fólk geti almennt notið sjálfstæðis í lífi sínu til jafns við ófatlað fólk. Ráðherra leggi fram tillögu að útfærslu á þjónustunni ásamt frumvarpi til nauðsynlegra lagabreytinga á haustþingi 2010.

Ályktunin var samþykkt samhljóða.

Tillagan í heild (á vef Alþingis)

Umræðan á Alþing við afgreiðslu ályktunarinnar (opnast á vef Alþingis)

Skrifað 8.6.2010 kl. 20:10 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.6.2010

íslandsmót fatlaðra

Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum utanhúss fór fram á Laugardalsvelli laugardaginn 5. júní. Alls voru 44 keppendur skráðir til leiks frá 12 félögum. Að frátalinni svifryksmengun voru aðstæður góðar við mótið en sökum mengunarinnar var ákveðið að fella niður lengstu hlaupagreinarnar, 200m. og 400m. hlaup. Af þeim sökum var aðeins keppt í 100m. hlaupi, langstökki, kúluvarpi, hástökki og spjótkasti.

Sérstaka ánægju vakti á mótinu vaskleg endurkoma Hauks Gunnarssonar en kappinn reif fram skónna á nýjan leik og keppti fyrir hönd Suðra. Haukur keppir í flokki T37 og sýndi að hann hefur engu gleymt. Haukur er á meðal fremstu frjálsíþróttamanna í íþróttasögu fatlaðra á Íslandi og margfaldur verðlaunahafi hérlendis sem erlendis og hélt nokkrum heimsmetum í sínum ranni er ferill hans stóð sem hæst.

Þá voru þau Ingeborg Eide Garðarsdóttir, FH, og Baldur Ævar Baldursson, Snerpa, einnig mætt til leiks en bæði unnu þau til verðlauna á opna hollenska frjálsíþróttamótinu helgina 29.-30. maí síðastliðinn. Ingeborg náði sínum besta tíma á árinu í 100m. hlaupi er hún kom í mark á 17,51 sek. og Baldur bætti sig umtalsvert í langstökki frá mótinu í Hollandi er hann stökk 5,14m.

Kristófer Sigmarsson frá Eik á Akureyri vakti einnig verðskuldaða athygli á mótinu en Kristófer keppir í flokki þroskahamlaðra. Kraftmikill strákur að Norðan hér á ferðinni sem m.a. hljóp 100 metrana á rétt rúmum 13 sekúndum og skreið yfir 5 metrana í langstökkinu. Glæsilegur árangur hjá kappanum og verður spennandi að fylgjast með honum á næstu mótum.

Fleiri glæst tilþrif litu dagsins ljós á mótinu en Suðrasystur þær Hulda, Sigríður og María stálu senunni þegar þær systur komust allar þrjár saman á verðlaunapall. Þá kvað Hulda sér hljóðs á vellinum en þær systur komu færandi hendi. Stelpurnar búa í Mið-Mörk undir Eyjafjöllum og ef það er eitthvað sem þær eiga nóg af þessi misserin þá er það aska! Stelpurnar leystu mótsstjórn og fulltrúa stjórnar ÍF út með öskugjöfum en þær höfðu safnað saman ösku í nokkur ílát til gjafar. Þessi misserin er grátt um að litast á heimaslóðum systranna en það var enga grámyglu að sjá á þeim systrum við mótið enda annálaðir orkuboltar og fóru heim drekkhlaðnar verðlaunum að vanda.

Liðsmenn Eikar og Sigurjón Sigtryggsson frá Snerpu lentu í nokkru basli á leið sinni til Reykjavíkur. Töf varð á flugi hópsins að Norðan en Sigurjón og Eikarliðar börðu sér leið Suður og komust til mótsins þegar stökk- og kastgreinar voru að hefjast. Mótsstjórn heimilaði hópnum einnig að keppa í 100m. spretthlaupi en þar sem tímatökubúnaður mótsins var ekki lengur fyrir hendi voru hlaupin tímasett á skeiðklukku og því telst árangur þeirra í hlaupunum ekki lögleg úrslit.

Camilla Th. Hallgrímsson varaformaður ÍF setti mótið um síðustu helgi og hennar fyrsta verk við mótssetningu var að afhenda Kára Jónssyni silfurmerki ÍF. Hér að neðan fer umsögn um Kára:

Kári Jónsson er landsliðsþjálfari Íþróttasambands fatlaðra í frjálsum íþróttum. Kári sem er lektor í íþróttafræðum við Háskóla Íslands hefur yfirgripsmikla reynslu af frjálsíþróttum sem keppandi, þjálfari, kennari og fræðimaður
Kári hefur stýrt íslensku afreksfólki úr röðum fatlaðra á erlendri grundu með glæsilegum árangri og verið ÍF veigamikill aðstoðarmaður í hinum ýmsu atriðum er tengjast frjálsum íþróttum.

Stjórn ÍF hefur einróma samþykkt að sæma Kára Jónsson Silfurmerki ÍF en það er veitt þeim einstaklingum, sem inna af höndum skipulags- stjórnunar eða þjónustustörf í þágu íþrótta fatlaðra

Skrifað 7.6.2010 kl. 10:55 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.6.2010

sumarhátíð 2010

SUMARHÁTÍÐ 2010.

Þá er komið að okkar árlegu sumarhátíð sem verður

haldin í Reykholti í Biskupstungum fyrstu helgina í júlí

þann 2 júlí til 4 júlí.

Fjölbreytt dagskrá verður fyrir fjöldskyldurnar.

Endilega takið frá þessa helgi því að nú munum við skemmta okkur.

Nánari dagskrár kynning mun koma fram síðar.

Upp með sumarskapið.

Stjórnin.

Skrifað 2.6.2010 kl. 13:18 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.6.2010

fundur

Morgunverðarfundur um fátækt.

Stýrihópur Evrópuársins 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun boðar til morgunverðarfundar föstudaginn 4. júní næstkomandi í Gullteigi B á Grand hótel þar sem fjallað verður um fátækt á Íslandi í dag. Fundurinn er sá fyrsti í fundaröð þar sem fjallað verður um fátækt, félagslega einangrun og leiðir til úrbóta.

Á fundinum munu sérfræðingar á sviði fátæktar og félagslegrar einangrunar gera grein fyrir sinni sýn á vandamálið og hvað þurfi að gera til þess að takast á við fátækt á Íslandi.

Fyrirlesarar verða Guðný Björk Eydal frá Háskóla Íslands, Vilborg Oddsdóttir frá Hjálparstofnun kirkjunnar og Sólveig Reynisdóttir frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar. Að loknum erindum verða umræður og fyrirspurnir til fyrirlesara.

Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8.15 en fundurinn hefst kl. 8.30 og stendur til kl. 10.00.

Fundurinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis.

Skrifað 2.6.2010 kl. 13:11 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

31.5.2010

Kynningarfundur

Skrifað 31.5.2010 kl. 9:40 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.5.2010

Opið hús

Skrifað 27.5.2010 kl. 9:35 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.5.2010

framboðsfundur

Hverju lofa flokkarnir um velferð fatlaðra?

Opinn fundur ÖBÍ þriðjudaginn 25. maí kl. 16.00-19.00 á Hilton Reykjavík, sal A, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
Fulltrúar í framboðum til sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu svara spurningum um áherslur þeirra og forgangsröðun í málefnum fatlaðra.
Fundarstjóri: Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Fundurinn er öllum opinn.
Táknmálstúlkar verða á staðnum og tónmöskvakerfi.
Mætum öll!   Ekkert um okkur án okkar!

Skrifað 25.5.2010 kl. 12:14 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.5.2010

Hvatningarverðlaun 2010

Nú er komið að okkar árlegu hvatningarverðlaunum hjá cp félaginu .

Í  ár hlýtur Ýr Sigurðardóttir þessi verðlaun, sem hvatningu fyrir hennar störf í vetur .
En Ýr setti á laggirnar fótbolta námskeið fyrir fatlaða eða eins og hún kallar það Fótbolti fyrir alla og hafa börnin mjög gaman af þessum tímum .
Síðustu helgi fengu börnin að keppa á íslandsleikum Special Olympics og voru allir sigurvegarar í lok dags.
Við veitum þessu verðlaun í von um að þetta verði hvatning til annarra að gera slíkt hið sama í öðrum í þróttagreinum.

Havtningaverðlaunin verða veitt laugardaginn 22 maí klukkan 11:00 í íþróttasal Stjörnunnar í Garðabæ, sama stað og æfingarnar fara framm .

Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og kynni sér í leiðinni þetta frábæra námskeið sem Ýr stendur fyrir.

Skrifað 21.5.2010 kl. 11:13 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.5.2010

Íslandsleikar

Í gær voru Íslandsleikar special Olympics  . Leikarnir fóru fram á íþróttasvæði KR í Reykjavík en KR er umsjónaraðili leikanna í samstarfi við ÍF og KSÍ.
Þarna mættu krakkar sem hafa verið að mæta í fótbolta fyrir alla sem hún Ýr Sigurðardóttir barnalæknir hefur haft veg og vanda af. Við hvetjum alla til að koma í fótbolta á milli klukkann 11 og 12 á laugardagsmorgnum í Asgarð í Garðabæ.
Hér eru stolltir CP krakkar með verðlaunin sín.


http://if.123.is/ er myndasíða Íþróttasambands fatlaðra og endilega kíkja á myndirnar en þær segja meira en mörg orð.

Skrifað 17.5.2010 kl. 13:16 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.5.2010

Vorhristingur




Föstudaginn 14. maí kl. 20.00 og sunnudaginn 16. maí kl. 17.00 ætlum við að vera með VORHRISTING

Sýnd verða nokkur stuttverk, gjörningur og flutt tónlist:

AFTUR Á SVIÐ eftir Fríðu Bonnie Andersen í leikstjórn Árna Salomonssonar. Leikarar eru: Hekla Bjarnadóttir, Hanna Margrét Kristleifsdóttir, Stefanía Björk Björnsdóttir, Þröstur Steinþórsson, Ásdís Úlfarsdóttir, Silja Kjartansdóttir, Tobias Hausner og Margrét Lilja Arnarsdóttir.

SNEMMA BEYGIST KRÓKURINN eftir Nínu Björk Jónsdóttur, leikstjóri Árni Salomonsson. Leikarar eru: Guðríður Ólafsdóttir, Sóley Björk Axelsdóttir og Kolbeinn Jes Vilmundarson.

Flutt verður 4. þáttur úr nýrri íslenskri óperu REKÖLDIN eftir Dag Sigurðarson og Einar Melax. Leikstjórn: Einar Melax og Gunnar Gunnarsson, Gunsó. Leikarar eru: Kristinn Sveinn Axelsson, Sólberg R. Haraldsson, Tobias Hausner, Daníel Þórhallsson og Rúnar Sigríðarson.

Prinsinn Páskar fremur gjörning og verður með uppistand sem hann kallar PRINSINN PÁSKAR PARTÝ PINNAST

Dúettinn CONDUCTIVE sem hinir margfrægu Tobbi og Danni skipa, flytja tónlistaratriði.
KEG TRÍÓIÐ flytur nokkur lög.
Tríóið skipa: Kolbrún Stefánsdóttir, Einar Andrésson og Guðfinna Ásgeirsdóttir.

Eitthvað ljúffengt verður með kaffinu í hléi

Miðaverð er 1200 kr. og kaffiveitingar innifaldar.
Miðasala er í síma 897-5007 og á midi@halaleikhopurinn.is

Skrifað 12.5.2010 kl. 20:15 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.5.2010

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu 2010

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu 2010
Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu 2010 verða haldnir sunnudaginn 16. maí 2010. Leikarnir fara fram á íþróttasvæði KR í Reykjavík en KR er umsjónaraðili leikanna í samstarfi við ÍF og KSÍ.  Upphitun hefst 12.45 og kl. 13.00 verður mótssetning.  Að keppni lokinni verður verðlaunaafhending og
síðan verða grillaðar  pylsur í boði ÍF.  
Í fyrsta skipti verður settur upp sérstakur "Stjörnuflokkur" barna með sérþarfir sem hafa verið að æfa í Garðabæ.  Þeim var boðið að taka þátt í Íslandsleikum Special Olympics og það var mikill áhugi á því. Ýr Sigurðardóttir barnalæknir er í forsvari þessa hóps og mun mæta með 4 lið til keppni.


Skrifað 12.5.2010 kl. 15:46 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.5.2010

Aðgengileg gisting

 

Ferðaþjónustan Skjaldarvík opnar 15. maí 2010

Hér er gaman!
Að fara á hestbak, stinga sér í pottinn og koma svo inn og njóta góðra veitinga áður en farið er í háttinn gæti hugsanlega orðið besti dagur ævi þinnar. Hér er vel tekið á móti þér í faðmi sveitarinnar. Skjaldarvík er staðsett í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð norður frá Akureyri. Hér er áhersla lögð á notalegt andrúmsloft, fagmennsku, gæði og hlýju. Allri gistingu fylgir morgunverður og á kvöldin bjóðum við upp á góðan og hollan kvöldverð af hlaðborði.
Húsnæðið er fyrrum elliheimili og því einstaklega gott  aðgengilegi fyrir fatlaða :)
Hér getið þið skoðað myndir og fl. www.skjaldarvik.is

Skrifað 6.5.2010 kl. 11:34 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.4.2010

Aðalfundur

Aðalfundur Félags CP á Íslandi verður haldinn

fimmtudaginn 29. apríl 2010, kl 20.

Háaleitisbraut 11-13, 4. hæð.

 

Skrifað 28.4.2010 kl. 11:10 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.4.2010

Sumarhús


Félagsmönnum í CP félaginu stendur til boða að leigja sumarhús af Þroskahjálp á Suðurlandi.
Um er að ræða orlfshús á Slefossi að Lambhaga 48.

Í húsinu eru fjögur misstór herbergi og svefnpláss fyrir átta manns. Sængur og koddar fylgja en gestir hafi með sér sængurver. Mjög gott aðgengi er að húsinu og innan þess. Í því er eitt sjúkrarúm og baðstóll.

Húsið er leigt í viku í senn, frá kl. 16 á föstudegi til kl. 13 næsta föstudag. Vikuleigan er 20.000 kr. sem greiðist inn á reikning félagsins við bókun, samkvæmt nánari fyrirmælum umsjónarmanns. Umsjónarmaður, Sigurborg Ólafsdóttir tekur við pöntunum í síma alla virka daga frá klukkan 10-18. Símanúmer umsjónarmanns eru 486 5537 og 866 1354.

Skrifað 28.4.2010 kl. 10:52 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.4.2010

Vorráðstefna

Skrifað 26.4.2010 kl. 13:24 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.4.2010

Dagskrá Aðalfundar

Aðalfundur Félags CP á Íslandi verður haldinn

fimmtudaginn 29. apríl 2010, kl 20.

Háaleitisbraut 11-13, 4. hæð.

 

 

Dagskrá aðalfundar:

1.Fundur settur

2.Fundarstjóri skipaður

3.Skipaður fundarritari

4.Skýrsla formanns

5.Gjaldkeri kynnir reikninga félagsins

6.Lagabreytingar

7.Kynning á mannefli - styrktarsjóður

8. Ákvörðun árgjalds

9.Formannskjör

10.Stjórnarkjör

11.Kjör skoðunarmanns reikninga

12.Önnur mál

Léttar veitingar verða í boði í lok fundar.

Skrifað 23.4.2010 kl. 12:39 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.4.2010

Lagabreytingar

Eftirtaldar tillögur að lagabreytingum  verða lagðar fyrir aðalfundinn. 
4.grein. 

Úrsögn úr félaginu skal á sama hátt tilkynna formlega til stjórnar félagsins. Þá telst sá félagi sem ekki stendur í skilum með félagsgjöld til félagsins, sjálfkrafa hættur í félaginu.

Verður

4.grein.

Úrsögn úr félaginu skal tilkynna formlega til stjórnar félagsins.


6.grein. 

Félagið starfar í einu lagi fyrir allt landið og skal árlegur aðalfundur þess boðaður öllum félögum skriflega, með bréfi eða rafrænum hætti í samræmi við 8. grein laga þessara.  Að auki skal auglýsa aðalfund í a.m.k. einu dagblaði á landsvísu með minnst 7 daga fyrirvara.  Aukafundi er heimilt að boða fyrir smærri svæði eftir hentugleika , með þeim aðferðum sem henta þykja hverju sinni, þó þannig að þess sé freistað að ná til allra þeirra félaga sem á viðkomandi svæði búa.

Allir félagar hafa málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á félagsfundum.

Verður

6.grein

Félagið starfar í einu lagi fyrir allt landið og skal árlegur aðalfundur þess boðaður öllum félögum skriflega, með bréfi eða rafrænum hætti í samræmi við 8. grein laga þessara.  Aukafundi er heimilt að boða fyrir smærri svæði eftir hentugleika , með þeim aðferðum sem henta þykja hverju sinni, þó þannig að þess sé freistað að ná til allra þeirra félaga sem á viðkomandi svæði búa.

Allir félagar hafa málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á félagsfundum.

Skrifað 23.4.2010 kl. 12:03 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.4.2010

Fótboltaæfingar

 FÓTBOLTI FYRIR ALLA
emoticon FÓTBOLTI FYRIR ALLA
Hefjast laugardaginn 24. apríl
kl. 11.00 í Ásgarði í Garðabæ

Æfingarnar eru ætlaðar öllum börnum sem geta ekki
nýtt sér hefðbundið barna- og unglingastarf vegna
fötlunar eða þroskafrávika.


Starfsemin er undir merkjum Stjörnunnar en öllum er
velkomið að skrá sig til leiks. Æfingagjöld eru 3.000 kr.
fyrir æfingar í 8 vikur.

Velkomið er að systkini iðkenda, foreldrareða aðrir
aðstandendur taki þátt í æfingunum og er markmiðið
að allir njóti boltans með sínu lagi.


Áhugasamir eru beðnir að láta vita af sér á tölvupóstfangi
ábyrgðarmanns, Ýrar Sigurðardóttur barnalæknis,
yr@lsh.is

Skrifað 21.4.2010 kl. 14:43 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.4.2010

Aðalfundur

Aðalfundur Félags CP á Íslandi verður haldinn

fimmtudaginn 29. apríl 2010, kl 20.

Háaleitisbraut 11-13, 4. hæð,

í húsi Sjónarhóls.

Stjórninn hvetur alla til að taka þetta kvöld frá, dagskrá kvöldsins verður auglýst síðar.

Skrifað 12.4.2010 kl. 11:39 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.4.2010

Kyning

Að brjótast í gegnum takmarkanir
Kynning á sjálfstyrkingarnámskeiði fyrir hreyfihamlaðar stúlkur

*       Skipuleggjendur námskeiðsins verða með almenna umfjöllun um
námskeiðið
*       Stuttmynd um námskeiðið sýnd
*       Tveir þátttakendur segja frá upplifun sinni af námskeiðinu
*       Foreldrar segja álit sitt á námskeiðinu
*       Samantekt
*       Umræður og fyrirspurnir

Kynningin er haldin í samstarfi við Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum við
Háskóla Íslands og fer fram í stofu 202 á Háskólatorgi föstudaginn 16.
apríl, kl. 13:00.
Verkefnið var fjármagnað með styrkjum frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
og Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar.

Allir velkomnir!

Skrifað 10.4.2010 kl. 14:50 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

31.3.2010

opið hús

Skrifað 31.3.2010 kl. 10:53 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

30.3.2010

Ótitlað

Skrifað 30.3.2010 kl. 10:24 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.3.2010

Útgáfa afsláttarkorta SÍ.

Fyrirkomulag afsláttarkorta vegna heilbrigðisþjónustu breyst um áramótin hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ).
Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt. Þó hefur það verið sent á lögheimili einstaklinga á pappírsformi (A4 formi) ásamt greiðsluskjölum til viðbótar við að hafa þau rafræn í Réttindagátt stofnunarinnar á sjukra.is.
·         Frá og með þessari viku verður hætt að senda afsláttarkortið og greiðsluskjöl til einstaklinga á pappír. Kortin og skjölin eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum Réttindagáttina.
·         Einnig er hægt að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu án afsláttar og fá endurgreiðslu frá SÍ sem millifærð er á eigin bankareikning.
·         Ef viðskiptavinir geta ekki notað ofangreindar leiðir má nálgast afsláttarkort og greiðsluskjöl með því að hafa samband við þjónustumiðstöð SÍ eða umboð á landsbyggðinni. Sími stofnunarinnar er 515-0000.
SÍ mun kynna þetta í fjölmiðlum í vikunni.

Skrifað 22.3.2010 kl. 20:58 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.3.2010

Námskeið

Fötlun í listum, menningu og fjölmiðlum

Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands

Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á að velta fyrir sér birtingarmyndum fötlunar í menningu og listum, og umfjöllun um fötlun í fjölmiðlum.

Birtingarmyndir fötlunar er mikilvæg heimild um viðhorf samfélaga til fatlaðs fólks. Innan fræðanna hefur lítil áhersla verið lögð á að skoða samspil fötlunar, menningar og lista ef frá eru taldar þær fræðigreinar er snúa að notkun listgreina í kennslu, þjálfun og endurhæfingu. Sú áhersla er oft í samræmi við hefðbundinn skilning á fötlun sem galla sem þarf að bregðast við að lækna og laga. Með tilkomu fötlunarfræða og nýjum skilningi á fötlun sem leggur áherslu á félagslega þætti hefur áhugi aukist á birtingarmyndum fötlunar í menningu, listum og fjölmiðlaumfjöllun um fatlað fólk.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á menningarbundnum hugmyndum um fötlun. Á námskeiðinu verður rýnt í stöðu og ímynd fatlaðs fólks og birtingarmyndir fötlunar í menningu vestrænna samfélaga. Fjallað verður um ímyndir og hlutverk fatlaðs fólks m.a. í listum, dægurmenningu, fjölmiðlum og bókmenntum. Umfjöllun námskeiðsins verður sett í samhengi við stöðu fatlaðs fólks í menningu samtímans.

Þátttakendum námskeiðsins er boðið á málþing: Fötlun, listir og menning III sem haldið verður 30. apríl 2010 og taka þátt í umræðum að fyrirlestrum loknum.

Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað.

Athugið við skráningu!

Skipuleggjendur námskeiðsins leggja áherslu á að það sé aðgengilegt fyrir alla og lagað að þörfum þátttakenda. Því biðjum við þig um að taka fram, í athugasemdareit við rafræna skráningu eða við skráningu í síma, ef eitthvað af neðangreindu á við um þig:

  • Þarf táknmálstúlk
  • Þarf námsgögn á stækkuðu letri eða blindraletri
  • Þarf námsgögn á auðlesnum texta
  • Þarf rittúlk
  • Kem með aðstoðarmann
  • Nota hjólastól
  • ... eða annað sem skiptir máli að skipuleggjendur viti af.

Kennari: Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor og
Kristín Björnsdóttir, aðjúnkt í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands
Tími:
Mán. 12. apr. og fim. 15. apr. kl. 16 - 19, lau. 17. apr. kl. 9 - 12, mán. 26. apr. og fim. 29. apr. kl. 16 - 19 (5x)
Verð:
29.900 kr.
Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7
Frekari upplýsingar og skráning eru hjá www.endurmenntun.is
 eða í síma 525-4444

Skrifað 22.3.2010 kl. 11:17 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.3.2010

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra 2010

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra 2010 
 
Dagna 20.-21. mars fer Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra fram þar sem keppt verður í sex greinum, sundi, boccia, bogfimi, frjálsum íþróttum, lyftingum og borðtennis. Keppni í sundi fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði, keppni í borðtennis fer fram í TBR húsinu en hinar fjórar greinarnar fara fram í Laugardalshöll. Frjálsar og bogfimi í frjálsíþróttahöllinni, lyftingar í bíósal frjálsíþróttahallar og boccia í aðalsal Laugardalshallar.
 
Alls eru 392 keppendur skráðir til leiks frá samtals 23 félögum. Af þessum 23 félögum eru 18 aðildarfélög Íþróttasambands fatlaðra en frá öðrum félögum hafa Ungmennafélag Njarðvíkur, Ármann, Rimmugýgur, Hringhorni og FH sent keppendur til leiks.
 
Sýnt verður beint frá boccia, lyftingum og frjálsum íþróttum á netútsendingastöðinni www.sporttv.is á sunnudeginum.
 

Skrifað 19.3.2010 kl. 18:53 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.3.2010

Nýungar í velferðarþjónustu

Ráðstefna á vegum Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) haldin þriðjudaginn 16.mars 2010 í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Skrifað 15.3.2010 kl. 15:38 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.3.2010

Opið hús hjá Hjálpartækjamiðstöðinni

Hjálpartækjamiðstöð SÍ er flutt í nýtt og rýmra húsnæði að Vínlandsleið 16 í Reykjavík og af því tilefni  verður opið hús fimmtudaginn 18. mars milli kl. 13.00 - 15.00.
Við bjóðum notendum hjálpartækja, heilbrigðisstarfsfólki  og seljendum hjálpartækja velkomin til að sjá nýja húsnæðið og starfsemina. 
.
Hlökkum til að sjá ykkur.
 
Með bestu kveðjum,
Starfsmenn Hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands 
 

Skrifað 15.3.2010 kl. 9:57 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.3.2010

Ótitlað

Farartæki fyrir fatlaða, sýning hjá Öryggismiðstöðinni á laugardaginn milli klukkan 12 og 15 að Askalind 1 í Kópavogi. 
  vv

Skrifað 12.3.2010 kl. 10:10 af Klara

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.3.2010

Spjallfundur

Foreldraspjall

Mánudaginn 8. mars 2010 verður opinn spjallfundur.

Fundarefnið verður allt sem vildir  vita um CP og það sem liggur á þínu hjarta.

Fundurinn hefst klukkan 20:00 og verður í Sjónarhólshúsinu.

Nú gefst gott tækifæri til að spjalla og fræðast hvert af öðru.

 
               Vonandi sjá sem flestir sér fært að koma og eiga notalegt spjall yfir kaffibolla.

Skrifað 5.3.2010 kl. 9:42 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.3.2010

Ráðstefna um fötlunarrannsóknir

Ráðstefna um fötlunarrannsóknir

Mannréttindi og sjálfstætt líf - Ráðstefna um fötlunarrannsóknir

Föstudag 12. mars, 2010, kl. 9.00 - 17.00

Grand Hótel Reykjavík

Félag um fötlunarrannsóknir og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við

Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands bjóða til ráðstefnu um fötlunarrannsóknir.

Ráðstefnan er ætluð öllu áhugafólki um efnið.


Föstudag 12. mars, 2010, kl. 9.00 - 17.00

Grand Hótel Reykjavík

Félag um fötlunarrannsóknir og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við

Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands bjóða til ráðstefnu um fötlunarrannsóknir.

Ráðstefnan er ætluð öllu áhugafólki um efnið.

Ráðstefnustjóri:

Ragnar Gunnar Þórhallsson formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

09:00 Skráning

09:15 Setning:

Rannveig Traustadóttir, formaður Félags um fötlunarrannsóknir

09.20 Ávarp:

Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra

09:30 Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks og bannið gegn mismunun

Oddný Mjöll Arnardóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík

10:20 Kaffihlé

10:45 Samningur SÞ, réttur til fjölskyldulífs og aðgengi að foreldrahlutverkinu

Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor við Háskóla Íslands, Helga Baldvins og Bjargardóttir

þroskaþjálfi og lögfræðingur og Aðalbjörg Gunnarsdóttir háskólanemi

11:15 Samningur SÞ og aðgengi fyrir alla

Snæfríður Þóra Egilson prófessor við Háskólann á Akureyri og Eyrún Björk Pétursdóttir iðjuþjálfi

11:45 Umræður

með fyrirlesurum morgunsins í pallborði

12:00 Hádegishlé

13:00 Stuðningur við heimili og daglegt líf

Dóra S. Bjarnason prófessor við Háskóla Íslands

13.30 Sjálfstætt líf - helstu hornsteinar

Vilborg Jóhannsdóttir lektor við Háskóla Íslands og Freyja Haraldsdóttir háskólanemi

14.15 Sögulegt tækifæri: Uppgjör við fortíð - hvert stefnir í framtíð?

Rannveig Traustadóttir prófessor við Háskóla Íslands

14:45 Umræður

með fyrirlesurum eftirmiðdagsins í pallborði

15.15 Kaffihlé

15.30 Aðalfundur Félags um fötlunarrannsóknir

Dagskrá verður dreift í upphafi aðalfundar.

Fundarstjóri:

Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands

17:00 Ráðstefnulok

Ráðstefnugjald:

Almennt ráðstefnugjald er kr. 5000. Nemendur og lífeyrisþegar greiða kr. 2000.

Innifalið í ráðstefnugjaldi

: Ráðstefnugögn, morgunkaffi og síðdegishressing.

Skráning er á vef Félags um fötlunarrannsóknir

http://vefsetur.hi.is/fotlunarrannsoknir/skraning_radstefnuna_"mannrettindi_og_sjalfstaett_lif"_hal

din_12_mars_2010

Síðasti skráningardagur er 9. mars.

Nánari upplýsingar:

Kristín Björnsdóttir (krb4@hi.is) og Hanna Björg Sigurjónsdóttir (hbs@hi.is

Táknmálstúlkun:

Þeir sem þurfa táknmálstúlkun eru beðnir að láta vita með viku fyrirvara.


Skrifað 5.3.2010 kl. 9:32 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.3.2010

www.sjukra.is


Nýlega opnaði heilbrigðisráðherra formlega nýjan vef Sjúkratrygginga Íslands, www.sjukra.is.  Ný vefsíða Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is var tekin í notkun þriðjudaginn 16. febrúar sl. Vefurinn mun taka við hlutverki tr.is sem upplýsingaveita um réttindi til sjúkratrygginga. Markmiðið er einnig að vefurinn þjóni betur heilbrigðisstarfsfólki og stofnunum heldur en áður hefur verið gert.
Við hvetjum alla til að skoða þennan nýja vel.

Skrifað 5.3.2010 kl. 9:32 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.3.2010

Skíðakennska


Skíðamennska fyrir einstaklinga með sérþarfir

·        Fyrir hvaða aldur? Allir velkomnir til okkar.

·        Fyrir hverja? Krakka og fullorðna sem vilja læra á skíði en þurfa aðstoð.

·        Hvenær get ég komið? Annan hvern föstudag í allan vetur eða 22. jan, 5., 12 og 19. feb, 5. og   19. mars, og 2., 16 og 30. apríl 2010. Eins er alltaf hægt að hafa samband og finna annan tímaJ.

·        Hvað kostar þetta? Klukkutíminn kostar 2000kr og 2 tímar kosta 3500kr

·        Hvernig panta ég? Nauðsynlegt er að panta fyrirfram og þá er best að hafa samband við Elsu í síma 864-2062 eða senda mér tölvupóst á elsa@saltvik.is

Skrifað 5.3.2010 kl. 9:27 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.2.2010

Frétt

Fyrirlestur um útivist fatlaðra

Þann 15. febrúar næstkomandi mun Þroskaþjálfafélag Íslands bjóða upp á fyrirlestur um útivist og útivistarmöguleika fatlaðra. Fyrirlesari verður Beth Fox,  en hún efur unnið að útivistarmálum fatlaðra í hátt á þriðja áratug. 


Beth Fox er sjúkraþjálfari og sérkennari að mennt og er framkvæmdarstjóri National Sports Center for the Disabled (NSCD) í Colorado í Bandaríkjunum. NSCD býður öllum sem hafa sérþarfir upp á aðstoð við útivistariðkun, hvort sem það eru blindir í klettaklifri, fjölfatlaðir á skíðum eða fólk með félagsfælni í hópútilegu. 


Fyrirlesturinn hefst klukkan 20.00 þann 15. febrúar að  Borgartúni 6, 105 Reykjavík

Allir velkomnir, frítt inn.

Skrifað 10.2.2010 kl. 12:39 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 338
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 51924
Samtals gestir: 13438
Tölur uppfærðar: 9.9.2010 01:46:20